Laugardagur 14. mars, 2026
-2.2 C
Reykjavik

Hættustigi lýst yfir

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Hlaup er hafið úr Eystri-Skaftárkatli, að því er fram kemur á vef Veðurstofu Íslands. Þetta hlaup kemur í kjölfar hlaups úr vestari katlinum, sem nú er í rénun.
Þá segir jafn framt að ef fram fer sem horfir muni hlaupvatn ná þjóðveginum annað kvöld.

Í tilkynningu Veðurstofu segir að GPS-mælingar í Eystri-Skaft­ár­katli sýni að ís­hell­an þar sé far­in að lækka. Það bendi til þess að rennsli úr lóninu sé hafið. Íshellan hafi byrjað að lækka um klukkan ellefu í gærkvöldi og hafi lækkað um einn metra síðan þá.

„Síðast hljóp úr Eystri-Skaftárkatli í ágúst 2018 og miðað við vatnsstöðuna í katlinum er líklegt að þetta hlaup verði ámóta stórt. Þá hljóp hins vegar fyrst úr eystri katlinum og sá vestari fylgdi í kjölfarið,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Hlaupið árið 2018 var það stærsta frá upphafi mælinga og olli töluverðu tjóni.

Hafa lýst yfir hættustigi

Ríkislögreglustjóri hefur gefið frá sér tilkynningu í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi og lýsir yfir hættustigi vegna Skaftárhlaupsins.

- Auglýsing -

„Vatn getur náð meiri útbreiðslu en síðustu daga og má búast við einhverjum samgöngutruflunum á fjallvegum nærri Skaftá. Vegfarendur eru því beðnir um að fylgjast vel með upplýsingum um færð á vegum,“ segir í tilkynningunni.

Þá er möguleiki á að brennisteinsvetnismengunar geti gætt þar sem hlaupvatn kemur undan jökli. Það geti skaðað slímhúð í öndunarfærum og augum. Þá geti árnar flætt yfir bakka sína og yfir vegi sem liggja nærri. Ferðafólki er þá eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár ofan Skaftárdals og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -