Samkvæmt uppboðsvef sýslumanna hefur verið hætt við nauðungarsölu á sumarbústaðalandi Gylfa Þórs Sigurðssonar, knattspyrnumanns.
Upplýst var um helgina að 5000 fermetra sumarbústaðarland Gylfa Þórs Sigurðssonar í Grímsnes- og Grafningshreppi yrði seldur á uppboði hjá Sýslumanni Suðurlands á Selfossi þann 31. mars næstkomandi. Kom fram í fréttum að Gylfi Þór skuldaði skattinum 7,8 milljónir króna og því hafi verið gripið til þess ráðs að setja bústaðalandið í nauðungarsölu.
Á uppboðsvef sýslumanna er nafn Gylfa hvergi að sjá á eignum sem selja ætti í uppboði 31. maí. Því má gera ráð fyrir því að Gylfi hafi borgað skuld sína við Skattinn.
Sjá einnig: Sumarbústaður Gylfa Þórs settur á nauðungarsölu að beiðni Skattsins

