Í gærkveldi birtist mynd af hænu fastri í tré á samfélagsmiðlum og sagði ljósmyndarinn hænugreyið hafa setið þar í tvo daga. Hænan var töluvert hátt uppi í trénu, í um fjögurra metra hæð, og umhugsunartriði hvernig hún komst þangað til að byrja með.
Þetta kemur fram á Facebook síðunni Týnd/fundin dýr.
Hópur fólks var fljótt að bregðast við og koma hænunni til hjálpar. Innan tíðar heyrðist gagg um nærliggjandi garða þegar fólkið reyndi að lokka hænuna niður með því að „gagga“ hana niður. Óljóst er hvort hænan skildi fólkið en það var að lokum Gréta Sóley Grétarsdóttir sem náði loks að koma hænunni niður ásamt dyggri aðstoð vina og segir Gréta síðar í færslu á þræðinum: „Kellan (hænan) er komin niður og á sinn heimavöll.“
Freyja frekja Kjartansdóttir segir á síðunni heilan hóp af vinum hafa verið í því að reyna að koma hænuninni niður og hafi flestir verið í hlátuskasti. „Já krakkar.. laugardagskvöldin okkar sko!!“ Hún bætir því að þau séu enn hlæjandi. „Gréta hangandi uppi tré að spjalla við hænuna með okkur kvabbandi á bak við! Haha snilld bara“.

