„Gunnar Smári Egilsson formaður Sósíalistaflokksins segir að „nú hafa ekki engar skoðanakannanir verið birtar síðan snemma í síðustu viku. Það merkir ekki að engar kannanir séu gerðar. Nú er vertíð hjá könnunarfyrirtækjum.“
Hann bætir við að „þau kanna alla daga og selja flokkunum, sem borga fyrir með peningunum sem þeir tóku úr ríkissjóði.“
Gunnar Smári segir að „flokkarnir leka ekki út könnunum nema þeir komi vel út úr þeim. Og þar sem ekkert lekur út má reikna með að þeir komi allir illa út úr könnunum þessa dagana – Sigmundur Davíð stærði sig reyndar að því í viðtalið að Miðflokkurinn hefði mælst með 8% í einni könnun.

