Sunnudagur 18. janúar, 2026
6.8 C
Reykjavik

Gunnar Smári fær á baukinn fyrir að gera sér mat úr nekt Sigurðar: „Ekkert má maður lengur“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Yfirleitt fellur það sem Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður og sósíalisti, segir vel í kramið á meðlimum hópsins Sósíalistaflokkur Íslands en það á ekki við færslu hans í gær. Gunnar Smári birti skjáskot úr viðtali við Sigurð Inga Jóhannsson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Á þeirri mynd má sjá að ráðherrann var léttklæddur í hvítum nærbol.

Gunnar Smári skrifar um þetta: „Eina leiðin fyrir ráðherra að toppa þetta er að mæta ber á ofan í viðtal.“ Flestir sem skrifa athugasemd við færsluna eru á því máli að þetta sé hið besta mál, enda alþýðlegt.

Einn skrifar: „Vinalegt, allt of mikið jakkafatadæmi í gangi oft allan daginn.“ Kona nokkur skrifar svo: „Látiði ekki svona , nýkominn úr sturtu eftir puðið í hesthúsinu, það er a.m.k. margt sem ég vildi breyta hjá honum áður en ég kæmi að fatavalinu, s.s. afstaðan til sjávarutvagsins, stjórnarskrárinnar o.m. fl.“ Önnur tekur undir og segir: „Bara heimilislegur, Ekkert má maður. Ekki einu sinni heima hjá sér.“

Stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon er á sama máli og fyrrnefnt fólk og segir: „Sigurður Ingi er flottur. Skemmtilega alþýðlegur, afslappaður og ærlegur.“ Gunnar Smári virðist þó ekki taka þessu illa. „Ekkert má maður lengur. Ekki einu sinni að benda á að ráðherra mæti í sjónvarpsviðtal á nærbolnum í fyrsta skipti.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -