Þriðjudagur 10. mars, 2026
2.8 C
Reykjavik

Guðrún hjá Stígamótum: „Mikil er skömm KSÍ og Guðna að ausa úr sér orðafroðu, afneitun og lygum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðrún Jónsdóttir sem lengi var talskona Stígamóta, en er nú sest í helgan stein, segir að „það er orðið langt síðan að valdastofnun hefur verið afhjúpuð jafn svakalega og KSÍ undanfarið. Það þurfti konur sem einfaldlega una ekki órétti til þess að fletta ofan af þögguninni og samtryggingunni með ofbeldismönnum á meðal dáðadrengja þjóðarinnar. Konur sem hættu ekki, þrátt fyrir afneitun og grófar lygar forystunnar og þögn fjölmiðla æ ofaní æ. Hanna Björg Vilhjálmsdóttir tók þennan slag fyrir okkur öll og við skuldum henni mikinn heiður og þakkir. Mun fleiri konur tóku undir með henni og hrópuðu á torgum.“

Guðrún nefnir einnig að KSÍ og Guðni Bergsson séu ekki að koma vel út þegar á heildina er litið, reyndar langt frá því:

„Mikil er skömm KSÍ og Guðna Bergssonar að ausa úr sér orðafroðu, afneitun og lygum þar til brotaþola kynferðisbrotamanns í landsliðinu Þórhildi Tori Arnardóttur, var ekki vært að þegja lengur yfir valdníðslunni gegn henni, heldur varð að stíga fram með skjalfestar sannanir fyrir því að um ósannindi væri að ræða. Minna dugði ekki til að reka ofan í KSÍ óhroðann. Enn þrjóskast KSÍ menn við og senda út enn eina yfirlýsinguna þar sem þeir þræta fyrir sinn þátt og það vottar ekki fyrir auðmýkt eða samkennd eða iðrun gagnvart konunum sem hafa verið þaggaðar. Hversu margar skyldu þær vera?“

Að mati Guðrúnar eru landsliðsmenn KSÍ verndaðir dáðadrengir:

„Enn ekki orð um hina ósnertanlegu dáðadrengina sem eru sakaðir um hópnauðgun. Enn liggja konur sem segja frá ofbeldi landsliðsmanna undir grun um lygar og enn geta þær ekki nafngreint ofbeldismennina án þess að eiga á hættu að „réttarkerfið“ dæmi þær fyrir meiðyrði. Enn búum við við þær aðstæður að það getur verið verra en ekkert að kæra ofbeldið.“

- Auglýsing -

Guðrún er vongóð og segir að „bjartasta vonin er að við lærum af þessu ljóta máli að barátta fyrir réttlæti borgar sig og að þöggunarkúltúr KSÍ þrífist hvorki þar né annars staðar. Fótboltakarlar þurfa nú að rjúfa þögnina, stíga út úr skjólinu á bakvið formanninn og sýna að þeir uni ekki við þá hegðun sem varpar skugga á þá alla.“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -