Bæjarstjórn meirihlutans í sveitarfélaginu Árborg hefur samþykkt fjárveitingu upp á fimm milljónir króna til Styttubandsins úr vasa skattgreiðenda til byggingar styttu af Agli Thorarensen. Fjárveitingin var samþykkt á bæjarráðsfundi sem haldinn var í Ráðhúsi Árborgar, þann tuttugasta og fjórða júní síðastliðinn.

Guðni Ágústsson fyrrverandi ráðherra er talsmaður og forsprakki félags sem kallast Styttubandið.
Styttubandið var stofnað og skráð þann ellefta júní fyrra og er kennitala þess 7007201520. Styttubandið er skilgreint sem áhugamannafélag og er með skráð aðsetur á Eyravegi 37, 800 Selfossi.
Áætlað er að kostnaðurinn við gerð styttunnar af Agli sé um tuttugu milljónir króna, og þar af kemur fjórðungur kostnaðarins úr vösum almennings í Árborg. Ekki hefur komið fram hvaða aðilar munu greiða þær fimmtán milljónir króna á móti þeim fimm milljónum sem koma frá Árborg.
Mannlíf hefur reynt að fá viðbrögð frá þeim aðilum sem koma að málinu, þar á meðal bæjarstjóranum Gísla Halldóri Halldórssyni, hvort réttlætanlegt sé að veita fimm milljónum króna af almannafé í styttugerð. Engin svör hafa borist, og enginn sem Mannlíf ræddi við hefur viljað tjá sig opinberlega og svara spurningum um hvort fjárveitingin sé nauðsynleg og hvort fé almennings sé ekki betur varið í eitthvað brýnt samfélagsmál frekar en að aðstoða við styttugerð með milljóna króna fé skattgreiðenda.

Styttan af Agli er nú í steypingu í Bretlandi og er ætlað að hún muni rísa við vestanvert Sigtúnshúsið í hinum nýja miðbæ á Selfossi. Styttubandið hefur áætlað að styttan muni rísa í næsta mánuði.

Meðal þeirra sem standa að félaginu er áðurnefndur Guðni og þeir Sigurjón Erlingsson, Grímur Arnarson og Leó Árnason.

