Fimmtudagur 15. október, 2026
5.8 C
Reykjavik

Guðmundur sauðfjárbóndi æfur yfir níðingsskapnum: „Æ, andskotinn er að sjá þetta“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Guðmundur varð fyrir mjög leiðinlegri lífsreynslu á dögunum. Henni segir hann frá inn á Facebook hópnum Sauðfjárbændur. Guðmundur ók fram á lamb sem keyrt hafði verið á og lambið var skilið eftir á miðjum vegi og enn lifandi í þokkabót.

„Það er níðingsskapur að skilja eftir hálfdauðar skepnur a veginum og keyra bara burt hvors sem menn eru á móti lausagöngu á þjóðvegum eða ekki. Lambið var enn lifandi þegar mig bar að“.

Lambið var skilið eftir enn á lífi á miðjum þjóðveginum
Hvernig hefur fólk í sér að gera svona lagað ?

Ýmsar skoðanir á málinu koma svo í ljós undir innleggi Guðmundar. Farið er að ræða meðal annars það að móttökur bænda hafa ekki verið góðar þegar fólk hefur látið vita af slíkum óhöppum. Jónas nokkur segir: „Segið mér eitt hvernig bregðast bændur við þegar keyrt er á dýr mín reynsla að láta vita af svoleiðis er ekki góð hef oft komið að og látið næsta bæ vita hef orðið fyrir því óláni að aka á skepnu og viðbrögð hjá lögreglunni voru ekki nein þurfti að redda sjálfur græjum til að aflífa í það skiptið“.

Eyrún svarar Jónasi „Ég er bóndi og ég yrði mjög glöð ef ég yrði látin vita ef keyrt er á skepnu frá mér. Við vorum látin vita af lambi í fyrra sem hafði verið keyrt á og ekki látið vita af. Kunningi sem átti leið um veginn tók eftir því að lambið dró sig áfram á framfótunum, það hafði hryggbrotnað við höggið“.

Málið er það að auki við níðingshátt að skilja dýrið eftir lifandi stórslasað og láta engan vita þá er það skilið eftir á miðjum vegi sem setur aðra akandi vegfarendur í stórhættu. Sigtryggur er þó með skýringuna á reiðum höndum að er honum finnst „Sá sem keyrir á skepnur er líklega drukkinn eða undir áhrifum áfengis eða vímuefna!!!“. Sigtryggur ekki þar við sitja og skellir inn myndbandi um afleiðingar ölvunaraksturs.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -