Þriðjudagur 17. mars, 2026
0.8 C
Reykjavik

Guðmundur forstjóri afar áhyggjufullur: „Við þessar aðstæður má lítið út af bregða“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í Þórisvatni hefur vatnshæð aldrei mælst lægri að sumarlagi en nú. Kemur fram í frétt á vef Landsnets að slæm staða á nokkrum miðlunarlónum valdi gríðarlegu álagi á byggðalínuna sem er talin vera komin að þolmörkum.

Þó er ekki talin hætta á raforkuskorti á næstunni, en staðan í Þórisvatni er túlkuð sem áminning um mikilvægi þess að geta flutt raforku á milli landshluta.

Þórisvatn

Á miðlunarlónum á Norður- og Austurlandi er staðan hins vegar sögð ágæt og haft hefur verið eftir Guðmundi Inga Ásmundssyni forstjóra Landsnets, að nauðsynlegt sé að endurnýja byggðalínuna sem sé orðin meira en Fjörutíu ára gömul:

„Rekstur byggðalínunnar hefur verið þungur í sumar en orkuflutningar á milli landshluta þar sem lónstaðan er góð og þangað sem hún er verri hefur valdið því að flutningur hefur verið við öryggismörk í allt sumar. Við þessar aðstæður má lítið út af bregða til að raforkunotendur verði fyrir truflunum. Mikið álag eða fullnýting lína eykur flutningstöp og leiðir til að verri nýtingar virkjana. Þetta hefur í för með sér lakari árangur í umhverfis- og loftslagsmálum auk þess sem kostnaður við orkukaup vegna flutningsins eykst verulega.“

Guðmundur Ingi segir að „tvær stórar uppfærslur eru í vinnslu og sú staða sem nú er uppi sýnir hversu brýn uppbygging flutningskerfis raforku er; sérstaklega tenging landshlutanna. Við hjá Landsneti höfum lengi bent á nauðsynlega endurnýjun byggðalínunnar, sem nú er yfir fjörutíu ára gömul; þannig að við getum mætt betur áskorunum framtíðarinnar vegna loftslagsbreytinga og rafvæðingar.“

- Auglýsing -

Eins og kemur fram á vef Landsnets er nú unnið að því hörðum höndum að ljúka tveimur stórum áföngum að uppfærslu nýrrar kynslóðar byggðalínunnar og er fyrri hlutinn á milli Kröfluvirkjunar og Fljótsdalsvirkjunar – um Hólasand – til Akureyrar; en hinn hlutinn er tenging Blönduvirkjunar við Eyjafjarðarsvæðið sem og lína frá Hvalfirði yfir Holtavörðuheiði að Blönduvirkjun.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -