Hinn eitilharði Guðmundur Felix Grétarsson, sem kallar sig stundum „handhafa“, birti frábært myndband á Facebook í gær. Fékk hann á sig grædda tvo handleggja fyrir einungis tíu mánuðum en hann deildi frétt á Facebook veggi sínum umfjöllun franska fjölmiðilsins, France 3, þar sem má sjá stórkostlegan árangur Guðmundar Felix eftir aðgerðirnar.
Sést hann narta í mandarínu í myndbandinu og svo skrifar hann nafn sitt á blað og er það ótrúlegur árangur, miðað við hversu stutt er síðan hann fór í aðgerðirnar. Þá segir Guðmundur Felix í samtali við France 3 að hárin séu farin að taka við sér. „Neglurnar vaxa mjög hratt og hárin aðlagast mér. Nú er hárið á handleggjunum eins og hárið á öllum líkamanum,“ staðfestir hann.“ Bætti hann svo við; „Í hverri viku fæ ég nýja gjöf.“
Segist hann vera búinn að venjast Lyon, hún sé fallegt og að hann sé farinn að upplifa hana sem heimili.
Á Henri Gabriel sjúkrahúsinu hefst endurhæfingaráætlun hans á hverjum degi hjá sjúkraþjálfaranum Clémence Garrone sem nuddar axlir og handleggi Guðmundar Felix. „Það er dálítið morgunsiður að hita upp liðina og vinna í örum, fylgjast með húðinni.“ En þetta snýst ekki bara um að fylgjast vel með öllum vísbendingum um höfnun. Þetta er líka spurning um að leggja til æfingar til að örva framfarir hjá ígræðsluþeganum.
Mun það mögulega taka líkama Guðmundar fjölmörg ár að venjast handleggjunum og í versta falli gæti hann misst þá. Þrátt fyrir það er hann bjartsýnn og segist sjá árangur í hverri viku.

