Guðmundi Óskarssyni fyrrum matreiðslumanni hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu finnst ástandið á Íslandi ekki nógu gott samanborið við Danmörku þar sem hann býr. Hann segir að „vinur minn sem býr í sama hverfi og ég í Óðinsvéum í þurfti til Íslands að fylgja tengdamóður sinni til grafar; hafði bæði góða og slæma lýsingu af íslensku þjóðfélagi,“ segir Guðmundur og vitnar í vin sinn og nágranna: „Við stoppuðum á kaffihúsi til að fá okkur kaffisopa og slappa af og ég hef aldrei upplifað þvílíka óreiðu. Það voru allir á harðahlaupum fram og til baka; þetta ástand stressaði mig bara upp. Umferðin maður: Það gefur enginn sjéns og maður var skíthræddur við að skipta um akrein.“
Guðmundir bætir við: „Þá kemur að góða hlutanum“ segir hann og vitnar aftur í vin sinn: „Framboð á fiski í fiskbúðum á bara ekki sinn líkan í heiminum; allskonar fiskréttir og kræsingar; fæ bara vatn í munninn við það eitt að hugsa um það.“
Sjálfur segir Guðmundur að „hér í Óðinsvéum var mikil hátíð þegar Danmörk komst í fjögurra liða úrslit á EM. Veðrið frábært og margir úti að drekka söngvatn; en það kom ekki fram að það hefði verið mikið að gera hjá Lögreglu og í Sjúkraflutningum.“
Hann segist lesa það „í fréttum að heiman frá skerinu að allt hafi verið vaðandi í brennivíni og nóg að gera hjá Lögreglu; blá ljós út um alla borg. Hvað er að á Íslandi? Fólk getur ekki drukkið áfengi öðruvísi en að vera öðrum og sjálfum sér að skaða og skammar,“ segir Guðmundur og heldur áfram:
„Mig langar ekki að búa í þessu þjóðfélagi eftir að ég kynntist Danmörku, svo mikið er víst.“

Hann segir að Ísland sé langt frá því að vera gott samfélag og „ég hefði sennilega aldrei skrifað undir þessa fullyrðingu ef ég hefði ekki kynnst því að búa í öðru landi. Ég þrælaði fyrir húsþaki yfir höfuð okkar allan minn fullorðinstíma á Íslandi; dýrmætasta tímann í lífi fjölskyldurnar þegar börnin eru lítill og uppbygging á framtíð þeirra er í mótun.“
Og bætir við:
„Í stað þess sneri maður skuldabunkanum við og byrjaði að reikna hversu marga reikninga við gátum borgað eftir útborgun; snéri honum svo til baka og aftur byrjaði hann að hlaðast upp. Þetta er döpur lýsing af lífinu en því miður staðreynd hjá mörgum,“ segir Guðmundur sem segist „hata eignahaldsstefnu hægri manna í húsnæðismálum á Íslandi fyrir að taka frá mér dýrmætan tíma með börnum mínum þegar þau voru lítil. Ég sest stundum niður og fletti myndaalbúmunum af þeim og minnist góðra tíma; því sem betur fer var konan mín dugleg að taka myndir.“
Hann segir að „allar heimskulegar hugmyndir „Sjalla“ sem hafa ráðið á Íslandi meira og minna allan lýðveldistímann, um að húsnæði sé manns eigin lífeyrissjóður í ellinni er lygi.
Þegar börnin fara úr hreiðrinu þá hefst hjá fólki viðhaldið á „lífeyrisjóðnum þínum“ og þegar á að fara að selja og kaupa minna og viðhaldsfrírra húsnæði þá kostar það jafn mikið og gamla húsið þitt selst á.“
Guðmundur er á því að „byggingafyrirtækin sjá alveg um að éta „lífeyrisjóðinn þinn“ upp til agna og í bónus fær fólk kannski myglu.“
Hann segist þekkja „eldri hjón hér í Óðinsvéum sem seldu húseign sína á rúmlega 3.3 milljónir en þau áttu húsnæðið skuldlaust. Þau fóru til leigufélags sem þau höfðu alla tíð borgað áskrift að og sóttu um litla íbúð og fengu strax úthlutað.“ Um var að ræða „76 fermetra íbúð í eldri borgara blokk, 60 plús. Þau borga 5,200 í leigu á mánuði með öllu nema vatni og rafmagni; húsnæðinu fylgir aðgangur að félagsheimili fyrir ýmsar uppákomur og félagsstarfi,“ og segir Guðmundur að „starfsmaður sér um lóðina og um allt rusl sem til fellur. Þau eru nú á eftirlaunum og eru bara að leika sér í golfi og skemmta sér. Covid setti strik í reikninginn í ferðlögunum en þau eru bjartsýn á að það sé að verða búið. Þetta kalla ég raunverulegan lífeyrisjóð en ekki eitthvað plat fyrir verktaka,“ segir Guðmundur að lokum í færslu sinni á Facebook-síðu Sósíalistaflokks Íslands.

Færsla Guðmundar hefur vakið athygli og nokkuð er um ummæli við hana. Til dæmis segir Guðrún Ágústa Þórdísardóttir – sem hefur reynslu af að búa í öðrum löndum en Íslandi – að hún sé „algjörlega sammála,“ orðum Guðmundar: „Ég hef bæði búið í Englandi og núna í Svíþjóð og þetta er allt annað og betra líf.“ Og Sigurður Ómar Jónsson er ekkert að skafa utan af hlutunum:
„Ísland hefur alltaf verið „fokked.“
Jón Páll Garðarsson er með innlegg í umræðuna og segir að „ég átti mér hugsjón og flutti lögheimilið til Íslands fyrir 10 árum til að taka þátt í stjórnmálastarfi á veturnar; ég starfa við eingöngu á vorin og haustin. En ég hef fengið mig fullsaddan af vitleysunni í landanum og er um þessar mundir að flytja alfarið aftur. Ef ykkur tekst þessi bylting er aldrei að vita hvort ég eyði einhverjum ellidögum á skerinu, annars kem ég ekki einu sinni til með að millilenda þar.“
En íslenska myndlistarstjarnan Jón Óskar er ekki alveg á sama máli og er heldur jákvæðari í garð hins íslenska samfélags en aðrir í athugasemdum við færslu Guðmundar og segir að „það er ekkert að á Íslandi – við erum bara öðruvísi. Kannski erum við hallærisleg? Það hefur verið sagt um okkur í 200 ár og ég hef bara lært að lifa með því.“

