Fyrrverandi matreiðslumeistarinn Guðmundur Óskarsson furðast sig mjög á íslensku samfélagi, og það ekki í fyrsta sinn. Að þessu sinni lýsar hann furðu sinni yfir því að makar erfi ekki lífeyrisréttindi þegar maki fellur frá.
Guðmundur gerir málið að umtalsefni í færslu á spjallsvæði Sósíalistaflokksins. Þar segir hann:
„Þó ég sé ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni þá veit ég muninn á réttlæti og óréttlæti og hef gagnrýnt mjög lífeyriskerfið á Íslandi í mörg ár hér á samfélagsmiðlum. Eitt óréttlætið í því kerfi er makalífeyrir og skal það rökstutt hér. Ég var í 17 ár úti á sjó og hún hugsaði um börnin okkar fjögur og vann úti eins og hún gat,“ segir Guðmundur og heldur áfram:
„Allur þungi heimilissins var á hennar herðum meðan ég var úti á sjó ásamt þeirri útivinnu sem hún gat miðað við aðstæður. Ég gat verið áhyggjulaus úti á sjó því vandfundinn er annar eins dugnaðarforku sem hún er. Vegna skildna hennar á heimilinu hefur hún þrisvar sinnum minni lífeyrisréttindi en ég á Íslandi.“
Guðmndur bendir á að þau hjónin hafi búið saman nú í 43 en þrátt fyrir samheldnina fái kona hans ekki að njóta lífeyrisréttinda hans eftir andlátið. „Samkvæmt læknaskýrslum gerum ég ráð fyrir að ég verði gróðursettur á undan henni. Eftir fráfall mitt þá fær hún óskertan makalífeyrir í 2 ár og svo verður hún að lifa á sínum lífeyrir. AF HVERJU FÆRIST RÉTTINDI MÍN EKKI YFIR Á HANA VIÐ FRÁFALL MITT? Ég veit ósköp vel að fólk er að gifta sig oftar en einu sinni á ævinni og þá verður kannski mjög flókið að deila réttindum, en við megum aldrei gefast upp á réttlæti bara af því það er flókið. Ég trúi ekki að fólk vilji ástunda óréttlæti af því réttlæti er flókið,“ segir Guðmundur.

