Tugir björgunarsveitarmanna leituðu göngumanns á Strandartindi á Seyðisfirði í dag og munu halda áfram fram á nótt ef þörf krefur.
Samkvæmt frétt á Rúv.is hóf maðurinn gönguna og klifur á Strandartindi í morgun en hann er einn á ferð. Vinir hans sem biðu á Seyðisfirði misstu símasamband við hann í dag. Var þá strax byrjað að svipast fyrir eftir honum og dróni sendur af stað að leita hans úr lofti.
Um miðbik dags var svo haft samband við björgunarsveitir af Austur og Norðurlandi og taka um 50 manns þátt í leitinni en leitarsvæðið er krefjandi. Meðal leitarfólks er björgunarsveitarfólk sem sérhæft er í leit í erfiðu fjalllendi.
Fannst látinn
Á áttunda tímanum í gærkvöldi fannst göngumaðurinn látinn í hlíðum Strandartinds. Talið er að hann hafi fallið fram af klettum. Göngumaðurinn var erlendur ferðalangur. Í tilkynningu frá lögreglunni þakkar hún þeim sem leituðu að manninum, aðstoðina.
Fréttin hefur verið uppfærð.

