Föstudagur 6. mars, 2026
3.8 C
Reykjavik

Golfarinn Guðrún Brá og sundkappinn Róbert Ísak voru valin íþróttamenn Hafnarfjarðar 2021

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Golfarinn snjalli, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, úr GK var útnefnd íþróttakona Hafnarfjarðar árið 2021, á svokallaðri „rafrænni“ hátíð.

Þá var sundkappinn Róbert Ísak Jónsson, sundmaður úr Firði og SH, útnefndur íþróttakarl Hafnarfjarðar árið 2021.

Þetta er í annað sinn sem Róbert hlýtur þessa viðukenningu; fékk verðlaunin einnig árið 2017.

Athöfnin byrjaði með undirritun áframhaldandi samnings Rio Tinto á Íslandi, Hafnarfjarðarbæjar og ÍBH, þar sem þau tvö fyrrnefndu leggja pening í sjóð til að efla kennslu þjálfara sem og að hvetja til jafnréttisstarfs.

Þetta árið fékk Sundfélag Hafnarfjarðar ÍSÍ bikarinn, og er sundfélagið og Guðrún og Róbert, vel að heiðrinum komin,

Fyrir forvitna þá má sjá hér fyrir neðan hvaða einstaklingar fengu tilnefningar fyrir árið 2021:

- Auglýsing -

Annika Fríðheim Petersen, Haukar – handknattleikur, Anton Sveinn McKee, SH – sund, Arnar Elí Gunnarsson, AÍH – akstursíþróttir, Daníel Ísak Steinarsson, Keilir – golf, Emelía Ýr Gunnarsdóttir, Fjörður – sund, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Keilir – golf,                    Guðrún Edda Min Harðardóttir, Björk – fimleikar, Hilmar Örn Jónsson, FH – frjálsíþróttir, Jóhanna Elín Guðmundsdóttir, SH – sund, Leo Anthony Speight, Björk – taekwondo, Lovísa Björt Henningsdóttir, Haukar – körfuknattleikur, Magnús Gauti Úlfarsson, BH – borðtennis, Margrét Lea Kristinsdóttir, Björk – fimleikar, María Rún Gunnlaugsdóttir, FH – frjálsíþróttir, Nicoló Barbizi, DÍH – dans, Róbert Ingi Huldarsson BH – badminton, Róbert Ísak Jónsson, Fjörður – sund, Sara Rós Jakobsdóttir, DÍH – dans, Tjörvi Þorgeirsson, Haukar – handknattleikur, Una Hrund Örvar BH – badminton.

Kom fram að aðeins íþróttafólk í hafnfirskum íþróttaliðum innan ÍBH átti möguleika á útnefningu, en þurfa ekki að búa í Hafnarfirði.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -