Eva nokkur, móðir og hundaeigandi var gjörsamlega brjáluð eftir Bónusferð sína í gær.
„Var í Bónus í Árbæ með strákinn minn sem er fjögurra ára og hundinn okkar sem sat fyrir utan bundinn.“ Segir hún strákinn sinn hafa viljað fara út aðeins á undan sér, sem hún hafi leyft þar sem hún hafi bara átt eftir að borga. Þegar hún hinsvegar kemur út, situr sonur hennar grátandi fyrir utan verslunina.
„Ég spyr hann hvað sé að? „Það var kona að segja að Níko (hundurinn) okkar væri ljótur!!!“
Er ekki alveg í lagi? Maður segir ekki svona yfir höfuð, hvað þá við litla krakka!!!!
Þar sem þú varst farin þegar ég kom út og hefur ekki metnað að segja þetta framan í fullorðna manneskju heldur lítið barn. Ef þú ert hérna inn á kæra kona þá máttu skammast þín og hoppa þangað sem sólin nær ekki!“ Þetta skrifar Eva inn í Facebook hóp Árbæjinga.
Konan sem grætti drenginn, Jóna nokkur, sá færsluna og svaraði.
Jóna segist ekki geta annað en brosað, því hana gruni að hún sé umrædd kona.
„Ég kom út úr Bónus og sá yndislega fallegan hund fyrir utan. Ég talaði til hans og hrósaði honum fyrir að vera svona duglegur að biða.“ Sjálf segist hún nefnilega eiga tvo hunda sem ekki séu nógu vel uppaldir hjá henni til að hún geti skilið þá svona eftir fyrir utan verslun.
„Þegar ég var að setja pokana í bílinn kemur út lítill drengur og fer að kjá í hundinn. Mér fannst hann tala þannig til hans að hann ætti hann ekki, það er að þeir tilheyrðu ekki sömu fjölskyldu.“
Segir hún drenginn hafa talað fallega við hundinn og klappað honum blíðlega.
„Í ljósi allra frásagna sem maður heyrir um að börn verði fyrir hundsbiti ákvað ég að heilsa upp á litla drenginn og áttum við smá samtal. Ég sagði honum að maður ætti alltaf að passa sig á ókunnugum hundum og hann sagði mér að hann ætti voffann og hann væri fallegur og góður sem ég samþykkti vissulega enda var þetta afskaplega fallegur voffi. Það var stráksi líka og hann var skemmtilega ræðinn og mjög skýr.
Hann var enn að sannfæra mig um að voffinn væri góður þegar ég fór. Mér þykir leiðinlegt að hann skuli hafa komist í uppnám yfir samtali okkar en á sama tíma dásamlega fallegt að honum sé svona mikið í mun að hundurinn hans fái að njóta sannmælis og sár yfir því að einhver kelling skuli voga sér að gefa í skyn að hundurinn hans gæti verið varasamur.
Viltu vera svo góð að skila kveðju til góðhjartaða stráksins þíns fyrir mig. Þú mátt svo sannarlega vera stolt af honum. Og til Níko líka.“
