Mánudagur 12. október, 2026
8.8 C
Reykjavik

Gísla nóg boðið -„Hvernig ætli ÓB útskýri þetta?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Hvernig ætli ÓB útskýri þetta? Báðar myndirnar voru teknar um klukkan sjö í kvöld, önnur er við Fitjabakka og hin við Aðalgötu, báðar í Reykjanesbæ,“ skrifar Gísli nokkur í Facebook hópinn Stopp hingað og ekki lengra.

Með birtir Gísli tvær myndir af skiltum ÓB bensínstöðvarinnar sem sýnir töluverðan verðmun á bensín- og díselverði stöðvanna. Annars vegar er lítraverðið á bensíni 238,4 krónur, en á hinni stöðinni er það 251,6 krónur og er díselverðið 221,4 á ódýrari stöðinni og aftur 234,6 krónur á þeirri dýrari.

Ekki eru menn á eitt sáttir við þennan verðmun.

„Sorry en bensínstöðvum gæti ekki verið meira sama um neytendur. Það eina sem knýr bensín verð niður er Costco. Ég versla ekki eldsneyti annars staðar, 1500 króna munur á 40 lítra díseltanki á N1 Höfða og Costco. Ekki spurning hvern ég á viðskipti við, skítt með fimm þúsundund króna ársgjald hjá Costco, fullt af vörum ódýrari þar fyrir utan bensín,“ skrifar Snorri.

Bjarni skrifar: „Hef séð þennan mun sitt hvoru megin við húsið hjá þeim á Selfoss Olís fyrir framan hús og ÓB í felum fyrir aftan hús það eru sjúkir einstaklingar sem stýra svona viðbjóði.“

Arnlaugur er hinsvegar kominn með nóg af umræðu um verðlagningu bensínstöðva.
„Mikið getur þetta verið þreytandi umræða um blessað bensín/olíuverðið. Ef allar stöðvarnar eru með sama/svipað verð þá er verðsamráð en ef það er mismunandi verð milli stöðva þá er verið að mismuna fólki.
Ekki misskilja mig, ég er alls engin klappstýra fyrir olíufélögin og sjálfsagt eru þau að okra á okkur eins og allir aðrir.
Það er augljóst að verðið er lægst í ákveðnum radíus við Costco (reyndar komnar dælur með sama verð á Akureyri) en svo þarftu ekki að keyra mjög langt útfyrir þennan radíus til að finna sama háa verð og er á landsbyggðinni. Þar af leiðandi þá geturðu fundið sama mun á bensínverði í Reykjavík þar sem svipað langt er á milli bensínstöðva og þessar tvær.“

- Auglýsing -

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -