Hvorki meira né minna en hundrað og átta sinnum var hóað í slökkviliðið á á síðastliðnum sólarhring á höfuðborgarsvæðinu, og greinilegt að „gamla og góða“ djammið er komið til síns heima í skemmtanalífi landans, eftir langa útlegð vegna Covid.
Af þessum hundrað og átta útköllum voru þrjátíu og tvö svokölluð forgangsverkefni. Og sex útköll tengd Covid.

Eftir að Covid-banninu var að mestu aflétt hafa skemmtanaþyrstir Íslendingar heldur betur látið til sína taka og pakkfullir skemmtistaðir eru gott dæmi um það; aukning á útköllum viðbragsaðila hefur verið gríðarlega mikil á þessum stutta tíma síðan afléttingin varð að veruleika.
Eins og við mátti búast þá hefur mætt gríðarlega mikið á viðbragsaðilum undanfarnar vikur; sérstaklega eftir að skemmtanalífið fór á „flug.“ á nýjan leik, mörgum til gleði og mörgum til ama.

Samt er það svo að viðbragðsaðilar kvarta ekki sáran undan pressunni; eru nánast öllu vanir og passa upp á samfélagið okkar með stakri prýði.

Eftir öll þessi útköll segja viðbragsaðilar varðandi álagið á síðastliðnum sólarhring að dagskráin hafi verið „nokkuð þétt“ sem líklega er „understatement“ – svo maður haldi sig við okkar „ástkæra ylhýra.“

