Margir muna eftir hinum mikla markaskorara, Lárusi Guðmundssyni sem á að baki stórkostlegan feril sem knattspyrnumaður; landsliðsmaður og atvinnumaður.

Hann er enn þá greinilega að gera það gott löngu eftir að knattspyrnuferlinum lauk.

Á ferli sínum hér á landi lék Lárus með Víkingi og aðeins tvítugur að aldri, árið 1981, varð Íslandsmeistari með félaginu og varð auk þess markakóngur deildarinnar það árið með 12 mörk.

Lárus lék lengi sem atvinnumaður með belgíska liðinu Waterschei og þýsku liðunum Bayer Uerdingen og Kaiserslautern. Alls lék Lárus 17 landsleiki fyrir Íslands hönd og skoraði í þeim 3 mörk.

Lárus og eiginkona hans, Ásgerði Baldursdóttur, komu sér afar vel fyrir í stórglæsilegu tveggja hæða húsi í Garðabæ að Bæjargili 98, á besta stað, en hafa nú ákveðið að selja.

Það er fasteignasalan Fasteignamarkaðurinn ehf sem heldur utan um söluna og ekki er ólíklegt að ásókn í húsið verði mikil, ef marka má myndirnar.

Brunabótamat er 54.340.000. krónur

Fasteignamat er 85.500.000. krónur og áhvílandi er 0 krónur. Húsið er 221 fermetri að stærð og var byggt árið 1988. Í því eru 8, 2 baðherbergi og 5 svefnherbergi. Flottur bílskúr er við húsið og suðvestur svalir.

Garðurinn er glæsilegur – 495 fermetrar á gróinni og skjólsælli lóð í grónu og fallegu hverfi.

Njótið myndanna.

