Freyja nokkur á í miklum vandræðum með að ná blóðleifum af bílnum sínum og leitar ráða hjá netverjum um hvernig hún geti tekist á við þetta. Blóðið er úr lúsmý og situr það pikkfast á lakki bifreiðarinnar.
Ljóst er að Freyja á verk fyrir höndum.
Freyja auglýsir eftir ráðum inni í fjölmennu samfélagi á Facebook, Þrifatips. Þar segir hún:
„Smá spurning hérna til ykkar snillinganaa þ.s.s reynsluboltanna ég er að reyna að kljást við þessar lús-mý blóðleifar sem virðist vera jafn fastar á framhluta bílsins hjá mér og lakkið á bílnum sjálfum. Hvernig er best að ná þessu af á auðveldan máta?,“ segir Freyja og bætir því við að hún hafi reynt ýmislegt til þess:
Bíllinn er hreinlega þakinn blóðugu lúsmýi.
„Búin að prófa WD40 spray, tjöruhreinsir ásamt því að nudda og nudda mjög vel en það virkaði ekki bara hrein plága að eiga við. Er stödd langt upp í sveit þar sem að það er ekki auðvelt að komast í bílaþrif vörur eða nokkuð þannig lagað og 40 mín akstur í næsta kaupstað. *Dæs*“
Fjöldi stígur fram með ýmiskonar ráð fyrir Freyju til að berjast við blóðleifarnar á bílnum. Gosdrykkurinn Coca Cola er eitt af því sem bent er á en Birna er með aðra tillögu: „Grænn Sámur sem heitir flugubani eða eitthvað þannig hreinlega leysir þær upp.“
Og Ásta þekkir líka ráð. „Flugnahreinsir frá Sonax er snilld fæst lika Íslenskur flugnahreinsir í Bónus ég hef ekki reynslu af honum,“ segir Ásta.