„Loksins!!!! Eftir ótal árangurslausar ferðir í Skeifuna fann ég Diego. Hann er sem sagt raunverulegur.“
Þetta skrifar Margrét nokkur inn í Facebook hópinn Spottaði Diego. Alls eru um 3100 manns í hópnum, en fyrir þá sem ekki kannast við Diego þá er það líklegast einn frægasti köttur Íslands. Diego heldur yfirleitt til í Skeifunni, er afar mannblendinn og virðist elska að fá klapp og klór frá öllum þeim sem eru tilbúnir til að veita honum það.
Svo virðist, miðað við skrif í Facebook hópinn, sem margir leggi leið sína í Skeifuna til þess eins að berja köttinn augum, sumir hafa jafn vel farið ansi margar ferðir líkt og hún Margrét sem skrifar einnig, „næsta markmið er að hitta hann vakandi svo ég fái að klappa honum. Þorði ekki að stugga við honum, hann var svo þreyttur að sjá.“

Elín nokkur skrifar við færsluna. „Þú ert svo sannarlega ekki ein um að hafa farið í ótalmargar ónauðsynlegar ferðir í Skeifuna, bara til að berja höfðingjann augum. Því miður hafa þessar ferðir mínar ekki enn borið árangur.“
Margir gætu eflaust haldið að Diego væri heimilislaus og það væri ástæðan fyrir því hve löngum stundum hann eyðir í Skeifunni, meðal annars fyrir utan Hagkaup í von um að fá eitthvert góðgæti, en svo er ekki. Diego á gott heimili, er vel nærður og vel hugsað um hann, svo fólk þarf engar áhyggjur að hafa af loðna kisukrúttinu.

