Laugardagur 17. október, 2026
9.8 C
Reykjavik

Fór með fimmtán milljónir í spilakassa á einu og hálfu ári – „Þetta er full­kom­in geðveiki“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Alma Hafsteinsdóttir, formaður áhugafólks um spilafíkn, fékk nýlega í hend­ur banka­yf­ir­lit frá manni sem hafði tekið út 15 millj­ón­ir á 18 mánuðum í pos­um í sjopp­um. Eng­inn steig inn í ferlið og gerði at­huga­semd­ir. „Það er öll­um full­ljóst sem koma að þessu að þetta er full­kom­in geðveiki. Það er ekk­ert heil­brigt við þetta,“ seg­ir Alma í nýjasta þætti Dagmála á mbl.is

Lagt hefur verið fram á Alþingi frum varp um bann við spilakössum. Frumvarpið kemur frá þeim Ingu Sæland og Guðmundi Inga Kristinssyni í Flokki fólksins.

Ekki loðmæltur né reikull

Spilafíkn er ólík áfengis- eða vímuefnafíkn að því leyti að einkennin bera menn síður utan á sér. Það eru heldur ekki til nein blóðpróf til að ákvarða á hvaða stigi spilafíknin er. Spilafíklar líta yfirleitt eðlilega út allt þar til seinni stigum sjúkdómsins er náð. Spilafíkillinn er ekki loðmæltur eða reikull í spori. Hann getur sannfært sjálfan sig og aðra um að hann sé aðeins í tímabundnum peningavanda sem brátt muni lagast, segir á vef SÁÁ.

Ennfrem kemur fram að um það bil 2 – 5 prósent af þeim sem leggja undir í fjárhættuspilum séu haldnir sjúklegri spilafíkn. Spilafíkn geti þjakað fólk af báðum kynjum, á öllum aldri og sama hver staða þeirra er eða fjárhagsgeta. Á Íslandi er boðið upp á stuðning og meðhöndlun við spilafíkn í gegnum sjálfshjálparhópa sem starfa samkvæmt 12 spora kerfinu.

Tap upp á 360 þúsund á klukkutíma

- Auglýsing -

Alma kallar á að að stjórnvöld taki á vanda spilafíkla en ný­verið skilaði Land­læknisembættið inn um­sögn um frum­varpið og kem­ur fram í því áliti að embættið styður frum­varpið og vís­ar meðal ann­ars til þess að Norðmenn hafi bannað spila­kassa árið 2007.

Alma seg­ir að spila­kass­ar séu í al­ger­um sér­flokki þegar kem­ur að ágeng­um fjár­hættu­spil­um. Hún nefn­ir sem dæmi að spilafík­ill geti tapað 360 þúsund krón­um á klukku­tíma í spila­köss­um sem reknir séu af virðulegum stofnunum og samtökum á við Rauða kross­inn, Lands­björgu og Há­skóla Íslands.

„Þetta er eins og seinni Metoo-byltingin enda þessi samtök og stofnanir ígildi „góðu strákanna,“ segir Alma.

- Auglýsing -

 

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -