Laugardagur 10. október, 2026
5.8 C
Reykjavik

Flugvélin sprakk og 25 brunnu inni – Mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fimmtudaginn 29. maí kl. 11.25 árið 1947 hélt tveggja hreyfla flugvél Flugfélags Íslands, TF-ISI,af gerðinni Douglas DC, af stað í áætlunarflug frá Reykjavíkurflugvelli og áleiðis til Melgerðisflugvallar í Eyjafirði. Mikill uppgangstími voru hjá Flugfélaginu á þessum árum og fjölgaði hratt í flota þess. Á þessum árum var ekki kominn flugvöllur við Akureyri heldur var landflugvélum lent á Melgerðisflugvelli sem er um hálftíma akstur inn af Akureyri, en sjóflugvélum var lent á pollinum við Akureyri. Lítið var af flugleiðsögutækjum á þessari flugleið og var því venjan að fljúga sjónflug.

Ítarlega er greint frá slysinu í samtímaheimildum, enda fylltist þjóðin mikilli sorg, og er frásögnin byggð á fréttum úr Morgunblaðinu, Tímanum og Baldri árið 1947.

Samband rofnar

Vegna skýjafars yfir hálendinu var flogið norður yfir Arnarvatnsheiði og síðan til Skagafjarðar og út fyrir mynni Siglufjarðar en þaðan átti að fljúga vélinni inn Eyjafjörð. Vélin varí reglulegu loftskeytasambandi, síðast við Akureyri kl. 12:45 þegar áhöfn kvaðst láta vita aftur af sér eftir 10 mín. Um svipað leiti sást til vélarinn út af Siglunesi. Aldrei náðist samband við vélina eftir það.

Þegar vélin skilaði sér ekki til Melgerðisflugvallar gróf um sig uggur með fólki. Þegar ítrekaðar tilraunir höfðu verið gerðar til að ná sambandi við hana án árangurs var hafin leit. Leitarflokkar hófu leit á landi og bátar voru sendir frá Ólafsfirði og Siglufirði til að kanna hvort hvort vélin hefði lent í sjónum. Bar leitin engann árangur. Á þessum árum var byggð í Héðinsfirði en þennan dag hafði verið mikil þoka í firðinum svo leitarflokkar fundu ekkert. Heimamenn höfðu ekki orðið neins varir varir aðspurðir um flugvélina. Morguninn eftir hafði þokunni létt svo unnt var að senda flugvélar til leitar og sáu leitarmenn fljótlega flak vélarinnar kl. 8:20 í hlíð Hestfjalls, norðan Héðinsfjarðar.

Tuttugu og fimm lík

- Auglýsing -

Var brugðið á það ráð að senda menn frá Ólafsfirði og Héðinsfirði að slysstað en afar erfitt var að komast að fjallinu sem er bratt og klettótt í sjó fram. Flakið var staðsett rétt innan við svonefndar Vogatorfu í utanverðu Hestfjalli, snarbröttu og ófæru fjalli, sem gengur í sjó vestan megin Héðinsfjarðar. Aðstæður á svæðinu voru erfiðar og lágur hlutar úr vélinni á víð og dreif um fjallið. Um kl. 15:30 fundu svo leitarmenn lík 24 manna, kvenna og barna. Síðasta líkið fannst nokkru síðar. Allt var þetta ungt fólk, sá elsti 49 ára.

Erfiðlega gekk að komast að flakinu í snarbröttu fjallinu. Ljósmynd: Síldarminjasafn Íslands.

Enginn var til frásagnar um hvað hefði nákvæmlega gerst en það þótti ljóst að sökum dimmviðris hafi vélin borist með vindi í mynni Héðinsfjarðar. Vegna stöðu flaksins var ljóst að flugmennirnir hefðu séð fjallið og reynt að hækka vélina án árangurs. Vélin flaug beint á fjallið og mun hafa sprungið og brunnið samstundis. Fjögurra manna áhöfn, auk 21 farþega, hafði verið í vélinni, þarf af þrjú ung börn.

Þau voru öll látin. Mannskæðasta flugslys Íslandssögunnar hafði orðið.

- Auglýsing -

Djúpstæð áhrif

Í frétt Tímans af slysinu segir svo: „Allt var brunnið af flugvélinni sem brunnið gat og hún hafði brenglast mikið við sprenginguna. Flest líkin lágu á víð og dreif í kringum flakið, sum allfjarri. Hafa þau sennilega henst úr vélinni við sprenginguna. Mörg þeirra höfðu mikla áverka, en önnur voru með minni. Minnstir áverkar höfðu orðið á líkum barnanna. Í vélinni sjálfri voru nokkur lík.”

Björgunarmenn unnu þrekvirki en reyndu mjög á þá við þessar skelfilegu aðstæður auk þess sem flestir þeirra voru ungir menn og hafði þessi reynsla djúpstæð áhrif á þá. Höfðu sumir á orði að þeir myndu aldrei gera neitt þessu líkt aftur.

Lýsti einn þeirra aðkomunni þannig: „Þegar ég var kominn að vélarflakinu fór ég að litast um. Sá ég þá ungt barn sitja á klettasyllu með opin augu. Hélt ég í fljótu bragði að það væri lifandi. Fór ég þangað en er ég kom nær, sá ég að það var daíð og stirnað en augun brostin.“

Líkin voru fyrst flutt til Ólafsfjarðar og þaðan til Akureyrar og kom ms Atli með þau kl. 22.00 að Torfunefsbryggjunni þar sem voru saman komnir um 4.000 manns.

Sálmar voru spilaðir og sungnir. Pétur Sigurgeirsson, síðar biskup, hélt ræðu og voru líkin síðan sett á vörubílspalla og ekið til kirkjukapellunnar.

Minningarathöfn var haldin um þau sem jörðuð voru utan Akureyrar 5. júní og þau flutt í varðskipinu Ægi til Reykjavíkur. Það var síðan 6. júní að í Akureyrarkirkju fór fram jarðarför þeirra 11 sem jarðsungin voru á Akureyri. Að henni lokinni var virðuleg líkfylgd þar sem bílalest flutti kisturnar og skátar gengu fylktu liði með bílalestinni.

Í Reykjavík voru hinir látnu jarðsungnir dagana 10. til 12. júní.

Með þökk og virðingu

Ári 1997 rifjaði Hörður Geirsson, safnvörður ljósmyndadeildar Minjasafnsins á Akureyri upp slysið í tilefni þess að hálf öld var liðin frá slysinu. „Það sem eftir var af flaki flugvélarinnar mun hafa verið fjarlægt nokkrum árum eftir slysið. Ekki hefur tekist að hafa upp á neinum sem kann að greina frá örlögum þess. Sennilegast er að leifarnar af flakinu hafi verið dregnar niður í fjöru þar sem sjórinn hefur eyðilagt það sem eftir var.“

Minnisvarði um þá sem fórust var reistur á slysstað árið 1997, þegar 50 ár voru liðin frá slysinu og árið 2009 var gefin út bók um slysið, Harmleikur í Héðinsfirði, sem Margrét Þóra Þórsdóttir skráði.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -