Sunnudagur 8. mars, 2026
1.7 C
Reykjavik

Flugumferðarstjórar lama samgöngur til landsins

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fundi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Isavia var slitið upp úr klukkan 23:30 í gærkvöld en hafði fundurinn staðið frá klukkan 13. Samkomulag náðist ekki milli þessara aðila og mun því koma til verkfalls.

Í frétt Vísis í gærkvöldi kemur fram að formaður Félags íslenskra flugumferðastjóra, Arnar Hjálmarsson, hafi staðfest í samtali við Vísi að boða hafi verið til verkfalls sem hefst þriðjudaginn 31. ágúst. Vinnustöðvunin verður stutt og tímabundin og nær hún til þeirra félagsmanna sem starfa hjá Isavia ohf. Arnar segist vonsvikinn yfir að ekki hafi náðst samningur en að yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna hafi kosið með vinnustöðvun og því beri félaginu að verða við ósk þeirra.

Þann 9. ágúst samþykktu félagsmenn að fara í sex sjálfstæðar vinnustöðvanir í kjaradeilunni en fimm þeirra hefur verið frestað en frestur til að boða þær rennur út næstkomandi þriðjudagsmorgun kl. 05:00.

Ljóst er að vinnustöðvunin gæti haft veruleg áhrif á ferðaþjónustuna sem ekki hefur farið varhluta af áhrifum Covid-19 veirunnar og nú bætist verkfallið við.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -