Laugardagur 14. mars, 2026
-0.2 C
Reykjavik

Fleiri vilja reka Arnar Þór en að hann haldi áfram: „Það þarf að taka til í öllum skúmaskotum KSÍ“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Könnun sem vefsíðan fotbolti.net setti í gang um hvort fólk vilji að Arnar Þór Viðarsson landsliðsþjálfari karlalandsliðsins í fótbolta sýnir svo um munar að fleiri vilja að hann víki en haldi áfram.

Spurt er hvort:

Á Arnar Viðars að fá áframhaldandi traust til að leiða uppbyggingu á nýju landsliði?

Boðið er upp á tvo valkosti:

Já, hann þarf tíma – og Nei, það eru til betri kostir. 

Eins og staðan er núna segja tæplega 38% svarenda nei, en rúmlega 62% svarenda segja nei.

- Auglýsing -

Vefsíðan fotbolti.net er afar vinsæl hjá fótboltaaðdáendum og alveg óhætt að taka mark á könnun frá síðunni.

Það er því ljóst, eins og staðan er í dag, að mun fleiri vilja að Arnar Þór verði látinn fara og að einhver annar betri kostur taki við starfinu.

Mannlíf heyrði nokkrum sparkspekingum, og voru flestir á því að skipta ætti um landsliðsþjálfara; stokka spilin alveg upp á nýtt hjá KSÍ – ekki bara í sjálfu landsliðinu eða á skrifstofu sambandsins, heldur líka skipta um landsliðsþjálfara.

- Auglýsing -

Flestir sem Mannlíf ræddi við nefndu Heimi Guðjónsson, Rúnar Kristinsson, Óskar Hrafn Þorvaldsson og Arnar Gunnlaugsson sem vænlega arftaka, ef Arnar Þór mun hætta.

Enginn nefndi einhvern erlendan þjálfara og sögðu flestir að eins og staðan væri hefði einfaldlega enginn almennilegur erlendur þjálfari áhuga á starfinu vegna allra hneykslismálanna sem hafa dunið yfir á þessu ári.

Einnig bar á góma nafn Heimis Hallgrímssonar, fyrrum þjálfara landsliðsins; margir vilja hann aftur en telja það ólíklegt að hann komi aftur fyrr en búið sé að taka til rækilega á öllum vígstöðvum hjá KSÍ.

Eða eins og gamalreyndur þjálfari orðaði það við blaðamann Mannlífs:

„Það þarf að taka til í öllum skúmaskotum innan KSÍ“

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -