Seint á föstudagskvöldi í október árið 2001 fannst Finnbogi Sigurbjörnsson, 44 ára gamall, látinn í garði í Breiðholtinu. Finnbogi var ókvæntur og barnlaus og til heimilis að Lindargötunni í Reykjavík. Ljóst var að morðið einstaklega hrottalegt.
Finnbogi hafði verið stunginn átta sinnum í bringu og bak og níu sinnum hafði hann verið skorinn á háls.
Áttatíu metra blóðslóð
Það var lögreglan sem gekk fram á lík Finnboga eftir að hringt hafði veriði vegna háreysti við hús við Bakkasel. Þegar lögreglu bar að staðnum fundust blóðblettir utan við húsið auk fleiri merkja um harkaleg átök. Blóðslóð lá frá húsinu sem lögregla rakti áttatíu metra þar til hún kom að líflausum líkama Finnboga og stóð banamaður hans yfir honum og þreif blóð af áhöldunum sem hann hafði notað við ódæðisverkið. Um var að ræða 24 ára gamlan mann, Ásbjörn Leví Grétarsson, að nafni. Ásbjörn var samstundis handtekinn á vettvangi.
Ásbjörn var afar ölvaður við handtökuna en játaði morðið daginn eftir og kvaðst hafa verið einn að verki. Sagðist Ásbjörn hafa hitt Finnboga á veitingastað í miðborg Reykjavíkurvíkur og höfðu þeir setið að drykkju saman áður en þeir ákváðu að halda á heimili Ásbjörns en hann leigði kjallaherbergi í Bakkaselinu. Þar sátu þeir við marjúanareykingar þegar Ásbjörn segir Finnboga hafa sýnt sér kynferðislega tilburði sem hafi vakið hjá honum sárar og erfiðar minningar um kynferðislega misnotkun sem hann hefði orðið fyrir í æsku.
Sárar minningar vakna
Ásbjörn sagði lögreglu að við minninguna hefði hann sturlast og ráðist að Finnboga sem honum fannst á þeim tímapunkti vera sá aðili sem brotið hefði á honum í æsku. Fann hann sterka þörf á að bana brotamanninum. Náði Ásbjörn í stóran eldhúshníf og stakk Finnboga átta sinnum í bringu og skar hann níu sinnum á háls. Finnbogi lést samt sem áður ekki við þessa heiftúðlegu árás og náði Ásbjörn þá í hafnarboltakylfu og sló Finnboga tíu sinnum fast í höfuðið. Þótt ótrúlegt megi virðast var Finnbogi þrátt fyrir allt enn á lífi að höggunum loknum. Sótti Ásbjörn þá plastpoka, setti yfir höfuð Finnboga og herti það þar til Finnbogi gaf upp öndina.
Greip á Ásbjörn lík Finnbogar og dró það áttatíu metra þar sem lögreglan kom að honum. Ásbirni var gert að sæta geðrannsókn og var hann dæmdur ósakhæfur sökum sturlunar og geðrofs.
Var Ásbirni gert að sæta öryggisgæslu á réttargeðdeildinni á Sogni.

