Föstudagur 16. október, 2026
8.8 C
Reykjavik

Halldór um Hopp-hjólin: „Flestir eru mjög glaðir en ekki ég“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég er með genagalla sem veldur því að ég hef minni orku í fótunum en jafnaldrar mínir og nota því rafmagnshjólastól til að fara á milli staða,“ segir í grein sem Halldór Björn, 10 ára Eyjapeyi, skrifar í Eyjafréttir.  „Eins og þið flest vitið eru nýlega komin Hopp-hjól til Eyja. Flestir eru mjög glaðir, en ekki ég og ég veit að aðrir fatlaðir vita um hvað ég er að tala”. Halldór Björn segir að eftir að Hopp-hjólin hafi komin séu þau oft hindrun fyrir rafmagnshjólastólinn hans til að komast á milli staða. „Margir sem nota þessi hjól henda þeim bara frá sér eða skilja þau eftir á miðri gangstétt. Svo gerið það hugsiði um aðra”.

Ákalli Halldórs hefur verið deilt á Facebook og er bent á að það eigi jafnvel enn meira erindi við íbúa miðborgar Reykjavíkur en íbúa Vestmannaeyja. Mikil umræða hefur átt sér stað um Hopp-hjólin undanfarið, ekki síst meðal íbúa Miðbæjarins en þar er gríðarlegt magn hjóla hist og her.

Vilhjálmur segist, sem íbúi í 101, ítrekað bent á hið sama.  „Að sjálfsögðu get ég stigið yfir rafskutkuna sem skilin var eftir þvert fyrir inngang að mínu heimili – en hvers vegna á svona lagað að teljast í lagi?” Hann segir að það sé aldrei í lagi. „Málið er hreint út sagt á ábyrgð rekstraraðila sem sjálfir eiga að finna lausn”. Vilhjálmur segir að það megi ekki vera bráðum, heldur núna.  ,,Þangað til „núna„ á sér stað eiga sveitarfélög að grípa inn í og stöðva þessa óværu, skrifar Vilhjálmur.

„Tillitsemi kostar ekkert,“ bætir Sigrún við.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -