Þriðjudagur 17. febrúar, 2026
-7.2 C
Reykjavik

Fárveik Steinunn í áfalli eftir hótunarbréf LÍN: „Hvernig geta þau verið svo mikil skítastofnun?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Ég er krabbameinssjúklingur og LÍN veit það. Þau halda samt áfram að senda hótanir eins og þessa. Hvernig geta þau verið svona mikil skítastofnun?“

Svona hljóðar færsla Steinunnar Mörtu á Twitter þar sem hún birtir harðorðað innheimtubréf frá innheimtufyrirtækinu Motus, fyrir hönd Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Bréfið ber yfirskriftina:

 „NÚ ER MÁLIÐ ORÐIÐ ALVARLEGT – LOKAVIÐVÖRUN!“

Steinunn útskýrir frekar og segist hafa verið það veik undanfarið að hún hafi ekki náð að senda inn fylgigögn með umsókn um greiðslufrest.

„Ég er búin að vera mjög veik. Fékk þá þetta bréf en ég er búin að borga núna svo krafan ætti vonandi að falla niður. Mér finnst þetta samt svo ýkt vinnubrögð hjá þeim. Ég er búin að vera á spítala helminginn af þessu ári og tafðist þess vegna við að senda inn fylgigögn. Þau hefðu bara þurft að kíkja á síðustu umsókn um undanþágu og leggja saman tvo og tvo og hefðu kannski getað sent mér áminningu í tölvupósti.“

Hildur tjáir sig um málið:

- Auglýsing -

„Bíddu, LÍN á að geta veitt greiðslufrest ef viðkomandi veikist, missir vinnu, fer aftur í nám og fleira. Hvaða drulla er þetta“ spyr hún og Ásmundur grípur keflið og þýtur af stað:

 „Það liggur við að ég myndi vísa gestum út af heimilinu mínu ef ég kæmist að því að þau væru að vinna fyrir LÍN. Þau sendu mér fáránlega en ‘legit’ rukkun upp á 300 þúsund krónur með eindaga á Þorláksmessu í fyrra. Gleðileg-fokking-jól, eða hitt þó heldur!“
Fólk er reitt vegna framkomu LÍN við veika manneskju og Valur nefnir að  „ég veit um fólk sem hefur lent í alvarlegum veikindum og LÍN hefur blákalt vísað þeim á að taka yfirdráttarlán í bankanum til að ná endum saman. Bankinn tók betur á móti þeim.“
[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -