Alþjóðlega rannsóknin Health Behaviour in School-Aged Children eða Heilsa og lífskjör skólabarna hefur verið lögð fyrir 15 ára krakka víða um heim, meðal annars hér á landi frá árinu 2006. Samkvæmt nýjustu niðurstöðum hafa færri unglingar stundað kynlíf en í síðustu könnun en mikil samdráttur hefur orðið í kynlífi hjá íslenskum ungmönnum síðustu áratugina.
Árið 2006 höfðu 36 prósent íslenskra stúlkna í 10.bekk stundað kynlíf og 29 prósent stráka en í síðustu könnun sögðust 24 prósent stúlkna hafa stundað kynlíf og 27 prósent stráka. Þá hefur hlutfall stráka lækkað lítillega en hlutfall stúlkna hefur lækkað um þriðjung.
„Það að færri unglingar byrji snemma að stunda kynlíf skýrist ekki af Covid-faraldrinum, vegna þess að þessi þróun var hafin áður en hann kom til sögunnar,’’ sagði Ársæll Arnarsson, prófessors við Menntavísindasvið Háskóla Íslands í viðtali við Fréttablaðið sem fjallaði um málið í morgun. Ársæll telur skýringuna líklega vera minnkandi áfengisneysla meðal unglinga en hefur drykkja meðal íslenskra ungmenna minnkað mikið á síðustu árum.
„Kannski má orða það svo að ófullir unglingar taki betri ákvarðanir,“ sagði Ársæll.
Færri ungmenni í 10.bekk stunda kynlíf og drekka áfengi – „Ófullir unglingar taki betri ákvarðanir“

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
