Faðir á Austfjörðum hefur verið dæmdur í skilorðsbundið fangelsi í 45 daga fyrir ofbeldi gegn dóttur hans. Einnig þarf hann að greiða henni 350.000 kr. í miskabætur.
Manninum var gefið á sök að hafa reiðst dóttur sinni, tekið í öxl hennar og ýtt henni inn í herbergi. Þar hafi hann svo gripið í hana og ýtt henni þannig að hún féll við. Hann hafi svo haldið dóttur sinni niðri og sparkað að minnsta kosti einu sinni í læri hennar. Þannig hafi hann brotið hegningar- og barnaverndarlög. Við ofbeldið hlaut dóttirin eymsl fyrir ofan hægra eyrað og varð hrædd. Hún hafi hágrátið á meðan á þessu stóð en þótti þetta fyrir rétti í dag, allt saman ruddalegt og særandi fyrir stúlkuna. Faðirinn neitaði sök í málinu.
Feðginin eru sammála í meginatriðum um aðdraganda atviksins en hann er sá að hún hafi látið fúkyrði falla í eldhúsi heimili þeirra. Það sem gerðist í kjölfarið eru þau ósammála um en bæði báru þau við nokkru minnisleysi um atburðinn sem dómurinn taldi það vera vegna hugaræsings þeirra og tilfinningalegs ójafnvægis auk bræðis föðursins.
Faðirinn sagðist fyrir dómi hafa misst stjórn á skapi sínu um stund en dóttirin lýsti mikilli hræðslu við föðurinn. Lögreglumenn sem mættu á staðinn sögðu hana hafa verið í miklu uppnámi þegar þeir komu. Dómurinn taldi sig ekki geta litið fram hjá þeirri staðreynd að að stúlkan var ung að árum og faðirinn meðvitaður um þau vandamál sem höfðu hrjáð hana um hríð. Hann hafði leitað aðstoðar hjá fagaðilum vegna félagslegra erfiðleika, vanlíðunar og áhættuhegðunar stúlkunnar.
Faðirinn viðurkenndi að hafa ýtt stúlkunni inn í herbergi og haldið henni niðri og að hún hefði fallið á gólfið. Dóttirin sagði hann hafa einnig beitt sig valdi sem hafi byrjað áður en inn í herbergið kom. Þá segir hún að hún hefði einnig mátt þola hárreitingu, ýtingar og axlartak af hendi föður síns.
Dómurinn studdist í úrskurði sínum við vottorð læknis er varðaði meðal annars höfuðeymsl, en einnig frásögn og ljósmynd lögreglu og starfsmanns barnaverndar sem mættu á vettvang. Taldi dómurinn hæfilegt að dæma föðurinn í 45 daga skilorðsbundið fangelsi og greiða einnig dóttur sinni 350.000 kr. í miskabætur.

