„Bið ykkur um að sýna samfélagsábyrgð í strætó og horfa ekki fram hjá þegar ókunnugur maður er í strætó og er sýnilega að áreita unga konu sem vill ekkert við hann tala,“ segir Eva Lilja í færslu á Facebook síðunni Betra Breiðholt.
Augljóst ofbeldi
Hún segir hafa verið allavega 7 manns hafa setið fyrir aftan þessa ungu konu og tekur fram að enginn hafi neitt sagt eða gert til að stöðva þetta augljósa ofbeldi. ,,Strætóbílstjóri gerði heldur ekkert alla leiðina frá Ráðhúsi í Seljahverfi í leið 3”.
Eva segir það alvarlegt að við borgarar sýnum ekki samfélagsábyrgð þrátt fyrir grátur ungu konunnar sem ítrekað bað manninn að láta sig í friði. „Hvers konar samfélag viljum við vera? Þessi unga kona fær nú skýr skilaboð að öllum er sama og hvað þá í almennings vagni. Skömmin er okkar.”
Samstaðan bara til á netinu
Fjöldi fólks hefur brugðist við færslunni og spyrja einhverjir Evu hvort hún hafi gripið til aðgerða, sem hún segist hafa gert ásamt fjölskyldu sinni, og kallað til lögreglu.
Einnig er umræða um viðbrögð vagnstjóra sem sumir segja að sé upptekinn við akstur á meðan aðrir benda á að hann sé í talstöðvarsambandi við stjórnstöð og geti tilkynnt atvik á við þetta.
Dísa segir eina leið að þykjast þekkja þolandann. „Nei hæ! Langt síðan ég hef séð þig! Hvað er að frétta af mömmu þinni? Ertu með þessum manni? Nei? Komdu þá og sestu hjá mér til að catch up.“ Ef gerandinn bregst illa við svoleiðis, þá á ekki að hika við að hringja strax á lögregluna og biðja um aðstoð”.
Ísidór segir fólk vera bleyður og Einar segir að þessi svokallaða „samstaða” sé einungis til á netinu en þegar til komin þá sjái enginn neitt.
Veldur hræðslu og kvíða
Fleiri stíga fram með sambærilegar sögur af áreiti í strætó.
„Ég hef lent í því svo oft að vera ein í strætó klukkan kannski 11 að kvöldi til og einhverjir karlar 2x eldri en ég setjast hjá manni í nánast tómum strætó,” skrifar Heiða. Hún segist ekki vita hvort um hugsunarleysi sé að ræða en það valdi því að maður sé króaður skíthræddur upp við gluggann, grátbiðjandi inn í sér að manneskjan sé ekki að fara að reyna að tala við mann eða gera ekki eitthvað. „Oft er maður ekki svo heppin. Það er örugglega fullt af fólki sem gerir þetta ekki úr illsku eða vill bara vera vinalegt, en endilega hugsið út í það að manneskjan veit ekki hvernig þú ert og ekki setjast hjá þeim.
Það hafa margir slæma reynslu og þetta getur valdið svo mikilli hræðsu og kvíða”.

