Laugardagur 17. október, 2026
9.8 C
Reykjavik

Erna gjörsamlega kjaftstopp við Krónuna í Mosó „Finnst fólki þetta almennt í lagi?“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það logar allt á spjallsvæði Mosfellinga á Facebook eftir að Erna nokkur, íbúi í bænum, birti þar færslu sem innihélt frásögn og myndir af foreldrum sem leyfðu börnum sínum að ganga örna sinna nærri Krónunni.

Erna varð kjaftstopp er hún horfði fram á foreldra leyfa börnum sínum að bæði pissa og kúka við bílastæði nærri Krónunni og Mosó-Grill. Hún myndaði athæfið af svölunum sínum og birti eftirfarandi frásögn:

„Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Ég sé par með 2 litla drengi ganga yfir bílastæðið. Drengirnir þurftu að létta á sér og gerðu það með hjálp foreldranna, síðan þurfti sá yngri að kúka og var hjálpað við þá athöfn. Síðan sé ég að pabbinn fer að róta með tánni á skónum sínum greinilega til að moka yfir en tekur þá líklega eftir því að ég er að mynda athæfið. Meðan hann er að róta þrífur mamman rassinn og setur á bleiu og fer síðan að reyna að hreinsa upp það sem áður hafði verið sparkað yfir, setur það í notuðu bleiuna og tekur með sér. Finnst fólki þetta almennt í lagi?“

Fjölmargir Mosfellingar tjá sig undir færslu Ernu og flestir þeirra fordæma myndbirtingu Ernu af parinu með börnin. Nánast allir bæjarbúa telja athæfið í lagi enda hafi greinlega verið um neyð að ræða hjá börnunum. Laufey er ein þeirra. „Áttu strákarnir kannski bara að pissa á sig? Mér finnst þetta bara í góðu lagi og efast um að þau gerðu þetta að gamni sér,“ segir Laufey.

Davíð Oddsson er einn þeirra sem sjá ekkert athugavert við þetta. „Ekkert að því að pissa þarna (sérstaklega fyrir krakka). Spurning með kúkinn – en ef hann er tekinn með, þá er það svo sem ekkert mál heldur,“ segir Davíð.

Erna skilur ekkert í því hvers vegna reiðin beinist að henni sjálfri en ekki foreldrum barnanna. „Hér setti ég texta og mynd af athæfi sem ég tel ekki í lagi og fólk er reitt yfir myndum sem eru birtar til að sýna athæfið. Mér þætti gaman að sjá raunveruleg viðbrögð hjá fólki ef þetta gerðist í einkagörðum. Einnig vil ég benda a að þetta átti ser stað um miðjan dag og bæði Mosó-grill og Krónan voru opin og aðeins í göngufæri,“ segir Erna.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -