Laugardagur 9. maí, 2026
5.8 C
Reykjavik

Þýskur karlmaður formlega grunaður í máli Madeleine McCann: Dæmdur barnaníðingur og eiturlyfjasali

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Formleg tilkynning hefur borist frá yfirvöldum í Portúgal um mann sem grunaður er í tengslum við hvarf Madeleine McCann árið 2007. Maðurinn er Þjóðverji og hefur verið orðaður við málið áður. Þetta er í fyrsta sinn sem portúgölsk yfirvöld hafa tilkynnt að einhver hafi formlega stöðu grunaðs í málinu, allt frá því að foreldrarnir, þau Kate og Gerry McCann, lágu sjálf undir grun lögreglunnar árið 2007. Þau voru síðar hreinsuð af öllum grun.

Í tilkynningu saksóknara í Portúgal er maðurinn ekki nefndur en tekið fram að það hafi verið þýsk yfirvöld sem bentu þeim portúgölsku á hann.

Maðurinn sem um ræðir heitir Christian Brueckner og er 45 ára dæmdur barnaníðingur og eiturlyfjasali. Þýsk lögregluyfirvöld sögðu frá því í júní árið 2020 að Madeleine McCann væri mjög sennilega látin og að Brueckner bæri að öllum líkindum ábyrgð á dauða hennar. Hann hefur þó ekki verið kærður í tengslum við hvarf hennar síðan þá. Hann situr núna í fangelsi í Þýskalandi fyrir að hafa nauðgað konu á sama svæði í Algarve og Madeleine hvarf frá fyrir 15 árum síðan.

Samkvæmt Reuters hefur Brueckner neitað því að eiga þátt í hvarfi McCann. Samkvæmt saksóknara hafa bæði bresk og þýsk yfirvöld tekið þátt í rannsókninni.

Brueckner bjó í Algarve á milli ársins 1995 og 2007. Þar stundaði hann innbrot inn á hótel og í orlofsíbúðir. Hann falsaði einnig vegabréf og var tekinn við að stela dísel-olíu úr portúgalskri höfn.

Ekki er vitað fyrir víst hvers vegna portúgölsk yfirvöld ákváðu að láta til skarar skríða núna og nefna grunaðan mann formlega. Það er þó talið geta tengst fyrningu brota í réttarkerfi Portúgals. Fyrningartími brota þar sem hámarksrefsins er 10 ára fangelsi eða meira, er 15 ár. Í næsta mánuði verða einmitt komin 15 ár frá hvarfi Madeleine McCann.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -