Ótrúlegt atvik átti sér stað um borð í strætó í seinustu viku í Oklahomaborg í Oklahomafylki í Bandaríkjunum. Maður að nafni Tihron Harrison bað strætóbílatjóra um að hleypa sér út á gatnamótum en hafnaði bílstjórinn þeirri beiðni Harrison og sagði að hann gæti farið út á næstu stoppistöð.
Sú höfnun varð til þess að Harrison kýldi bílstjórann í andlitið meðan hann var við akstur. Bílstjórinn reyndi að verjast en Harrison dró bílstjórann úr bílstjórasætinu og vagninn var því stjórnlaus meðan Harrison hélt áfram að ráðast á bílstjórann og hætti ekki fyrr en strætóinn keyrði á hús en þá flúði hann vettvang.
Bílstjórinn hlaut minniháttar áverka og slasaðist enginn í húsinu eða strætónum við áreksturinn. Harrison var fljótlega handtekinn en ekki hefur verið hvort og þá fyrir hvað hann verður ákærður.
Strætó keyrði á hús eftir líkamsárás farþega á bílstjóra – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -