Það kemur oft fyrir á hverjum degi um víða veröld að fólki mæti of seint á flugvelli og missi af flugferðum en óhætt er að segja að fáir hafi betri afsökun en Mike Jones.
Jones var á leiðinni á flugvöll í Los Angeles í Waymo leigubíl en fyrirtækið bíður fólki upp á sjálfkeyrandi bíla. Í myndbandi sem Jones deildi á samfélagsmiðlum sést hann í aftursæti leigubílsins meðan bíllinn keyrir í hringi á bílastæði flugvallarins og neitar að stoppa. Meðan hann tók upp myndbandið hringdi hann í fyrirtækið til að fá aðstoð en fékk litla hjálp. Hann hafði þó húmor fyrir þessu og leið eins og hann fastur í vísindaskáldsögu.
Samkvæmt Jones keyrði bíllinn átta hringi á bílastæðinu og varð til þess að hann missti af fluginu. Að sögn Jones hefur Waymo ekki greitt honum skaðabætur fyrir að missa af fluginu en Alphabet Inc. á fyrirtækið en það er sama fyrirtæki og á Google.
Sjálfkeyrandi bíll varð til þess að farþegi missti af flugi – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
