Betur fór en áhorfðist í Los Angeles um helgina þegar ökufantur flúði lögreglu og klessti bíl sinn.
Maðurinn hafði verið á flótta undan lögreglunni í tæpan hálftíma þegar hann missti stjórn Lamborghini bíl sínum með þeim afleiðingum að bíllinn endaði á hvolfi og klessti á annan bíl en atvikið átti sér stað á Tarzana-stræti í Los Angeles. Nánast um leið og bílinn endaði á hvolfi kviknaði í honum og drógu lögreglumenn og nærstaddir ökumanninn, sem hafði rotast í árekstrinum, úr bílnum og björguðu lífi hans en eins og má sjá í myndbandinu hér fyrir neðan var bílinn í ljósum logum.
Ökumaður jeppans sem bílinn keyrði á flúði vettvang og veit lögreglan ekki hvað varð um þann mann. Farið var með ökufantinn á sjúkrahús en ekki liggja fyrir upplýsingar um heilsu hans.
Ökufanti bjargað úr brennandi Lamborghini – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
