Stórfurðulegt slys átti sér stað um helgina í Palm Spring í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Þar var verið að halda hina árlegu ljósaskrúðgöngu Palm Springs og voru mörg hundruð áhorfendur mættir til að horfa á skrúðgönguna.
Lögreglan tók þátt í göngunni og skreytti bíla sína og mótorhjól en á myndbandi sem hefur verið birt af henni má sjá hræðilegt slys sem átti sér stað. Það virðist vera sem lögreglumaður á mótorhjóli auki óvart hraðann og missti í kjölfarið stjórn á hjólinu og klessti á áhorfendur. Samkvæmt fjölmiðlum vestanhafs slösuðust tíu áhorfendur en lögreglumaðurinn á mótorhjólinu missti aðra höndina.
Lögreglustjóri Palms Springs sagði í yfirlýsingu að málið væri í rannsókn og baðst innilega afsökunar á slysinu og óskaði öllum þeim sem slösuðust skjótan bata.
Lögreglumaður keyrði á áhorfendur í skrúðgöngu – Missti hönd í kjölfarið – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
