Það mátti svo sannarlega litlu muna fyrir indverska konu sem var að labba yfir götu í Mansi hverfinu í Dindoli í Indlandi þann 5. október.
Þegar konan var komin hálfa leið yfir götuna lendir plastvatnstankur á henni en lendir á einhvern ótrúlegan máta þannig að hún slasast ekkert. Nágrannar hlupu út á götu til athuga hvað gerðist og þeir voru heldur betur hissa þegar þeir sjá höfuð konunnar rísa upp um gat á tankinum.
Samkvæmt fréttamiðlum í Indlandi var skransali að taka til upp á þaki þegar hann missti tankinn af þakinu. Margir íbúar hverfisins telja að um kraftaverk sé að ræða og segja óskiljanlegt að hún sé á lífi en hún á að hafa verið nýkomin úr hindúsku hofi þegar atvikið átti sér stað.
Kraftaverk sagt hafa bjargað indverskri konu frá bráðum dauða – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
