Kona gekk berserks gang á flugvelli í Savannah í Georgíufylki í Bandaríkjunum í síðustu viku.
Konan stóð bakvið innritunarborð Delta flugfélagsins og öskraði á mann og annan og náðist atvikið á upptöku. Konan náði í nokkurn tíma að komast undan lögreglumönnum og öryggisvörðum með glæstum hreyfingum og má sjá einn lögreglumann kasta sér á eftir konunni en tilraun hans mistók hrapalega.
Konan endaði fljótt á sama stað bakvið innritunarborðið þegar öryggisverðir náðu í skottið á henni.
Lögreglan í borginni hefur ekki gefið upp hvort konan var handtekin eða hvað nákvæmlega varð til þess að konan ákvað að láta á þennan máta. Þá liggur ekki fyrir hvað konan heitir.
Farþegi lét öllum illum látum á flugvelli – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
