Forsaga málsins er sú að konan og maðurinn giftu sig árið 2004 en hann starfar sem lögreglumaður. Þau bjuggu þó ekki saman en konan býr í Surat Thani í Tælandi meðan eiginmaður hennar og þrjú börn býr í Chumphon.
Þrátt fyrir fjarlægðina á milli þeirra komast konan á snoðir um ítrekað framhjáhald mannsins en fyrirgaf manninum ávallt af því hún vildi ekki hafa neikvæð áhrif á börn þeirra. Undanfarin ár neitaði eiginmaður hins vegar konunni um að hitta börnin og sagði hana beita börnin ofbeldi. Konan hefur neitað þessum ásökunum.
Þann 30. desember í fyrra dró til tíðinda þegar hún greip eiginmann sinn með frillu sinni í bíl og voru börn eiginkonunnar með í ferð. Hún stóð fyrir fram bílinn og neitaði að færa sig. Samkvæmt fjölmiðlum í Tælandi tók frillan málin í sínar hendur og réðst á eiginkonuna. Hún náði að sleppa frá frillunni og ná í hníf sem var staðsettur í bíl eiginmannsins og stakk hann þrívegis.
Í kjölfarið á þessu atviki birti eiginkona lista yfir einstaklinga sem höfðu mútað eiginmanninum í störfum hans sem lögreglumaður en við hlið nafnanna var að finna upphæðirnar sem þeir eiga hafa greitt honum.
Eiginmaðurinn hefur ekki tjáð sig við fjölmiðla um málið.
Kona kom upp um mútuþægni eiginmanns eftir framhjáhald – Stakk hann þrívegis

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -