Það er ekki aðeins á Íslandi sem fólk heldur framhjá mökum sínum en rússnesk eiginkona manns sem var að halda framhjá henni tók málin í sínar hendur og réðst á eiginmann sinn og ástkonu hans.
Árásin átti sér stað fyrir utan karókíbar í Síberíu en þar sat konan fyrir eiginmanni sínum og frillu hans og réðst á þau þegar þau komu þaðan út. Árásin náðist á upptöku og sést konan ítrekað kýla eiginmann sinn áður en hún ræðst á hina konuna. Reif hún meðal annars í hár hennar og skellti haus hennar í vegg.
Samkvæmt rússneskum fjölmiðlum hafði eiginmaðurinn sagt við konu sína að hann væri að fara úr bænum vegna vinnu en var í raun áfram í bænum með hinni konunni.
Kona gekk í skrokk á eiginmanni sínum og frillu hans – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
