Lögreglan í Kólumbíu stöðvaði mann sem reyndi að smygla kókaíni í hárkollu en maðurinn var á leið til Amsterdam. Talið er að virði efnanna sem fundust í hárkollunni sé 1,4 milljónir króna en maðurinn sem var handtekinn er 40 ára gamall.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu stóð til að hann myndi fljúga frá Rafael Núñez flugvellinum í Cartagena og um hafi verið ræða sirka 400 neysluskammta af kókaíni.
Maðurinn hefur komið áður við sögu lögreglunnar í Kólumbíu en hann hefur í tvígang verið dæmdur fyrir eiturlyfjasmygl og hefur nú verið ákærður fyrir þetta tilvik. Ekki hefur tekist að tengja manninn við nein ákveðin glæpasamtök en grunur leikur á að maðurinn sé burðardýr fyrir þekkta glæpamenn þar í landi.
Karlmaður reyndi að smygla kókaíni í hárkollu – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -