Í dag gaf dómstóll í Bretlandi út formlega fyrirskipum um að Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, skuli framseldur til Bandaríkjanna. Innanríkisráðherra Bretlands, Priti Patel þarf að samþykkja fyrirskipunina en geri hún það, geta lögmenn Assange áfrýjað þeirri ákvörðun. Verði hann framseldur bíður hans réttarhöld í Bandaríkjunum fyrir að hafa birt leyniskjöld Bandaríkjahers.
Kristinn Hrafnsson ritstjóri WikiLeaks er afar ósáttur við fyrirskipun dómstólsins eins og sjá má á færslu hans á Facebook í dag.
„Slagurinn endalausi. Rétturinn sem hafði áður úrskurðað að Julian yrði ekki framseldur til Bandaríkjanna þar sem líf hans væri að veði var í morgun þvingaður af áfrýjunarrétti til að snúa sínum úrskurði. Ég sagði fyrir utan dómshúsið að þetta væri ígildi þess að vera þvingaður til að dæma mann til dauða. Nú er málið á hinu pólitíska borði. Innanríkisráðherrann Priti Patel getur á næstu vikum stöðvað þennan ósóma. Aldrei fyrr hefur verið mikilvægara fyrir pólitíkusa annars staðar að gera andúð sína á þessum pólitísku ofsóknum ljósa.“

