Betur fór en áhorfðist þegar hrægammur flaug á og braut rúðu í lítilli flugvél í Brasilíu í vikunni. Myndband sem tekið var upp innan í flugvélinni gengur nú eins og eldur í sinu um internetið og hafa netverjar hrósað flugmönnunum tveimur mikið fyrir að halda ró sinni í mjög erfiðum aðstæðum.
Í flugvélinni voru fimm einstaklingar en vélin var á leiðinni til Eirunepe frá Envira í Brasilíu þegar hrægammurinn flaug í gegnum rúðuna. Í viðtali við fjölmiðla þar í landi sagði aðstoðarflugmaðurinn að atvikið hefði getað endað mun verr og að mikil mildi sé að þeim hafi tekist að halda flugvélinni á lofti en hvorki flugmennirnir né farþegarnir þurftu að leita sér aðstoðar á sjúkrahúsi þrátt fyrir að gleri hafi ringt yfir þá.
Hrægammur braut rúðu flugvélar í loftinu – MYNBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
