Fimm menn sem voru í lyftu sem hrapaði í Svíþjóð í gær eru allir látnir.
Sagt er frá atvikinu í sænsku miðlum en rannsókn á málinu er hafin. Skoðað verður hvort vinnulöggjöf hafi verið brotin og slysið hafi borið að með saknæmum hætti. Lyftan er sögð hafa fallið 20 metra en hún var á byggingarsvæði í Sundbyberg í Svíþjóð.
„Þetta er alvarlegt atvik sem við höfum til rannsóknar, fimm manns hafa verið úrskurðaðir látnir,“ sagði Gunnar Jonasson, saksóknari við Umhverfis- og vinnuumhverfisstofnun Svíþjóðar í fréttatilkynningu um málið.
Unnið er að því að bera kennsl á mennina og hafa samband við aðstandendur. Búið er að tilkynna slysið til sænska vinnueftirlitsins og hefur öllum framkvæmdum á svæðinu verið hætt meðan rannsókn stendur yfir.
Fimm látnir eftir lyftuslys: „Þetta er alvarlegt atvik“

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
