Um nokkurt skeið hafa verið haldnar hátíðir í Bandaríkjunum sem nefnast „Fleet Week“ en þá gefst bandarískum almenningi tækifæri til að skoða skip, kafbáta og aðra hluti tengda sjóher landsins og stendur hátíðin yfir í viku og býður sjóherinn upp á ýmiss konar sýningar.
Sjóherinn hélt slíka hátíð í San Francisco á vesturströnd Bandaríkjanna fyrir stuttu og setti leiðinlegt slys mark sitt á hátíðina. Þar var boðið upp á sýningu frá fallhlífastökkvara sem sýndi listir sínar en það vildi ekki betur en að stökkvarinn brotlenti á konu og barni hennar. Samkvæmt vitnum var konan færð á sjúkrahús til athugunar en barnið þurfti ekki á slíkri aðhlynningu að halda.
Samkvæmt fjölmiðlum voru meiðsli þeirra sem betur fer ekki alvarleg. Fallhlífastökkvarinn slasaðist ekkert við lendinguna.
Fallhlífastökkvari slasaði konu og barn – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -