Einn maður er látinn eftir að fíll gekk berserksgang í trúarathöfn á Indlandi í vikunni.
Atvikið átti sér stað á miðvikudaginn þegar íbúar í Palakkad voru að halda árlega trúarathöfn sem er haldin til minningar um Aloor Valiya Pookunjikoya Thangal samkvæmt indverskum fjölmiðlum. Nokkrir fílar tóku þátt í athöfninni og sturlaðist fíllinn sem heitir Pakkathu Sreekuttan í miðri athöfn og réðst á fólk sem stóð nærri honum. Þá tók hann upp mann með rananum og sveiflaði honum fram og til baka og kastaði svo að lokum frá sér. Maðurinn var færður á sjúkrahús á miðvikudaginn en úrskurðaður látinn í dag. Maðurinn hét Krishnan Kutty og var 58 ára gamall.
Auk andláts Kutty slösuðust 24 einstaklingar áður en tókst að róa fílinn.
Einn látinn og tugir slasaðir eftir fílaárás á Indlandi – MYNDBAND

VefTv
- Auglýsing -
Hlaðvörp
- Auglýsing -
[facebook_large_like_btn]
Athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
Lestu meira
- Auglýsing -
Veistu meira um málið?
Endilega láttu heyra frá þér! Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.
Deila
Nýtt í dag
Mest lesið í vikunni
Í fréttum er þetta helst...
- Auglýsing -
