Elín Þ. Þorsteinsdóttir skrifar bráðfyndna færslu á Facebookvegg sinn á dögunum þar sem hún fagnar því að vera loksins búin að ljúka 11 daga sóttkví. Alls hefur hún þurft að dúsa í sóttkví í sex vikur frá upphafi faraldursins.
„6 vikur í sóttkví! Kæru FB vinir, nú eru aðeins tæpar 4 klst. þangað til ég losna úr 11 daga Covid-sóttkví, sú fimmta í röðinni en í þetta skiptið með réttu! Reikna samt ekki með rjúka niður í miðbæ á miðnætti. Allt í góðu með mig fyrir utan að bragð- og lyktarskyn vantar ennþá! Auglýsi hér með eftir því, geri engan greinarmun á Cherios og nautasteik! Á bókað út að borða á morgun, spurning hvort ég aflýsi því ekki?
Takk innilega fyrir hlýjar hvatningar Covid-kveðjur.
Er þakklát fyrir að hafa fengið þetta eftir 2 sprautur og 5 sóttkvíar en í heildina er ég búin að eyða 6 vikum í sóttkví frá upphafi faraldurs sem kenndi mér m.a. að vinna í fjarvinnu og stunda leikfimi heima! En er ekki komið nóg? Nú fer ég út í hið daglega líf með axlabönd og belti, full af mótefni til í hvað sem er!
Hvað varð annars um eldgosið? Missti ég af einhverju?“