Sunnudagur 10. maí, 2026
5.8 C
Reykjavik

Erla gagnrýnir afsökunarbeiðni Frosta – „Xxx er ekki ofbeldismaður og hefur aldrei verið.“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Mér finnst ekki rétt að hann stígi fram og segist vera búinn að vinna í sínum málum miðað við það hvernig hann kom fram í mínu máli,“ segir Erla Gunnarsdóttir um afsökunarbeiðni Frosta Logasonar í viðtali við Fréttablaðið.
Erla er ein þriggja kvenna sem kærðu sama manninn vegna ofbeldis sem þær sögðust hafa orðið fyrir af hans hálfu. Tvær þeirra komu fram í viðtali fyrir tæpu ári en ákvað Erla að segja sína reynslu eftir atburði vikunnar.
Árið 2019-2020 átti sér stað umgengnismál mili Erlu og barnsföður hennar sem hún hafði lagt fram kæru vegna meints ofbeldis. Erla vildi að umgengni mannsins við barn þeirra væri undir eftirliti en tekur hún fram að krafan hafi verið vel rökstudd.

Frosti var þá trúnaðarmaður mannsins og vitnaði um karakter hans í umgengnismáli og skrifaði meðal annars bréf til sýslumanns en hafði Frosti þá aðeins þekkt manninn í rúmt ár. Í bréfinu sagði meðal annars:
„xxx er ekki ofbeldismaður og hefur aldrei verið.“
Í bréfinu segir einnig:
„Það eru því miður ekki allir sem ná jafn góðum árangri og xxx en hann er eitt af þessum tilfellum þar sem menn uppskera eins og þeir sá, því xxx hefur eins og áður segir lagt sig allan fram í að leggja rækt við sína edrúmennsku.“
Hægt er að lesa viðtalið við Erlu í heild sinni á vef Fréttablaðsins.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -