Framkvæmdarráð almannavarnanefndar höfuðborgarsvæðisins ákvað á fundi í dag að fella niður allar áramótabrennur á höfuðborgarsvæðinu um áramótin. Er þetta annað árið í röð sem þær falla niður.
Vísir segir frá þessu í dag. Var ákvörðunin tekin vegna þess að núverandi fjöldatakmarkanir vegna Covid-19 miðast við 50 manns en einnig vegna fjölda smita í samfélaginu.
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu kom með tilkynningu um málið í dag. „Þrátt fyrir að áramótabrennur fari fram utandyra þá draga þær að sér fjölda fólks og það er mikilvægt að sveitarfélögin hvetji ekki til hópamyndunar við þessar aðstæður.“
Þar kemur aukreitist fram að sveitarfélögin átti sig á þeim vonbrigðum sem þessi ákvörðun veldur mörgum en mikilvægt sé að vinna saman að fækkun smita. Það sé gert með því að forðast mannmergð og halda jólin í minni hópum.

