Miðvikudagur 14. október, 2026
4.8 C
Reykjavik

Elín óttaslegin eftir fæðinguna -„Sé allt frekar blurry“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

„Sjónin mín virðist hafa snarversnað eftir fæðingu, sé allt frekar blurry eins og fyrir leiser. Ætlaði að taka screenshot af símanum til að sýna kæró hvað ég sæi illa. Virðist ekki bara hafa tapað sjóninni við fæðinguna heldur glórunni líka.“

Þetta skrifar jógakennarinn og heimspeki- og kynjafræðineminn Elín Ásbjarnardóttir á Twitter aðgangi sínum.

En svo virðist sem Elín þurfi ei að óttast, því sjónskerðingin gangi að öllum líkindum til baka.

Ingibjörg nokkur skrifar: „Við systur ætluðum saman í sjónmælingu og tókum fimm mánaða son hennar með. Starfsmaðurinn neitaði að mæla hana og rukka hana fyrir það, þar sem hún gæti þurft aaallt annan styrk viku seinna. Eitthvað með hormón tengd brjóstagjöfinni sem veldur þessu.“

Og önnur skrifar. „Já mér var ráðlagt að kaupa ekki gleraugu fyrr en í fyrsta lagi þegar barnið væri orðið eins árs.“

„Ég fór til augnlæknis á meðgöngunni því mér fannst sjónin hafa versnað, sem kom í ljós að var rétt og fékk þá að vita að þetta er víst algengt á meðgöngu en gæti gengið til baka,“ segir Helena.

- Auglýsing -

„It‘s a thing!!! Gengur til baka, bæði sjónin og grautarheilinn.“

Mannlíf vonar að þessar upplýsingar rói aðrar konur í sömu sporum.

[facebook_large_like_btn]

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -